Alta ráðgjafarfyrirtæki
Aðalskipulag Reykhólahrepps 2021-2033 - Kynning tillögu á vinnslustigi
Updated: Nov 15, 2021
Reykhólahreppur kynnir vinnslutillögu að Aðalskipulagi Reykhólahrepps 2021-2033. Tillagan er sett fram í greinargerð, á fimm skipulagsuppdráttum á þremur kortablöðum og þremur þemauppdráttum, auk umhverfismatsskýrslu. Gögn tillögunnar eru aðgengileg hér.
Íbúar og aðrir hagaðilar eru hvattir til að kynna sér skipulagstillöguna og senda inn ábendingar við efni hennar. Sérstaklega er kallað eftir rýni á tillögu að göngu- og reiðleiðum í sveitarfélaginu.
Ábendingar skal senda til skipulagsfulltrúa á netfangið skipulag@dalir.is fyrir 20. nóvember 2021. Þær má einnig senda á heimilisfangið: Skrifstofa Reykhólahrepps, Stjórnsýsluhúsinu við Maríutröð, 380 Reykhólahreppur.
Kynningin er á grundvelli 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Unnið verður úr ábendingum sem berast áður en gengið verður frá tillögu og umhverfismatsskýrslu til auglýsingar skv. 31. gr. skipulagslaga og 15. gr. laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021. Þá gefst lögbundinn 6 vikna athugasemdafrestur áður en gengið verður frá nýju aðalskipulagi til lokaafgreiðslu sveitarstjórnar.